13.7.2008 | 19:27
Kominn tími til
Jájá ég veit það alveg ég er lélegur bloggari en það verður bara að hafa það
En já svona til að segja frá einhverju þá gæti ég sagt ykkur að um daginn þá voru Írskir dagar hérna á skaganum líka í þessu svaðalega fína veðri og nóg um að vera allavega hafði ég nóg að gera og hitti helling af fólki, svo er nú alveg frá sögu færandi að segja frá því að ég fór á hið fræga lopapeysuball og stóð Jet Black Joe alveg undir nafni úúfff hvað þeir voru flottir alveg skúklegirgæjar annað skiptið sem ég fer á þetta ball og það er víst búið að plana að fara á næsta peysuball hehe bara stuð á bænum
Svo um síðustu helgi þá fór ég með gamla settinu og 4 börnum í útilegu og vorum við í nýja tjaldvagninum úff orkan sem þessi börn hafa eins gott að ég svaf vel til að hafa við þeim reynt var við fisk en enginn afli kom að landi en það gerist bara vonandi síðar í sumar því ekki erum við hætt að reyna við eins og einn lítin fisk ætlumst ekki til þess að fá einn stórann lax sko bara síli eða eitthvað það gleður lítil hjörtu alveg ógurlega
En nú þarf ég að þjóta set inn næst þegar eitthvað krassandi gerist þanga til have fun
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.